Um Brúa fjármögnun
Brúa fjármögnun er íslensk lausn fyrir greiðsludreifingu. Við tengjum saman seljendur og viðskiptavini með einfaldri og gagnsærri leið til að dreifa kostnaði við kaup. Seljendur ákveða kjörin sjálfir og bjóða þjónustuna undir eigin nafni, en Brúa fjármögnun sér um tæknina og ferlið þar á bak við.

Einfaldari leið að kaupum
Brúa fjármögnun tengir saman seljendur og viðskiptavini með greiðsludreifingu. Viðskiptavinurinn fær skýra greiðsluáætlun og seljandinn getur boðið meiri sveigjanleika í greiðslum.
Hvað við gerum
Við sjáum um tæknina og ferlið á bak við greiðsludreifinguna: lánshæfismat, rafræna auðkenningu og undirritun, greiðsluáætlanir og yfirsýn á Mínum síðum. Viðskiptavinurinn velur greiðsluleið, auðkennir sig með rafrænum skilríkjum og greiðir síðan fasta upphæð mánaðarlega.
Fyrir seljendur
Seljendur bjóða Brúa fjármögnun undir eigin nafni og ákveða sjálfir hvaða kjör þeir vilja bjóða viðskiptavinum sínum. Við sjáum um allt ferlið þar á bak við - frá lánshæfismati og samningum til útgreiðslna og innheimtu.
Þannig fær seljandinn tilbúna lausn sem fellur inn í eigið söluferli, án þess að þurfa að byggja upp kerfin eða umsýsluna sjálfur. Seljandinn heldur stjórn á kjörunum og sambandinu við viðskiptavininn, en Brúa fjármögnun sér um framkvæmdina.
Viltu Brúa fjármögnun í þinn kassa?
Segðu okkur frá rekstrinum þínum og við komum þér af stað.
Hafðu samband