Algengar spurningar
Allt sem gott er að vita um greiðsludreifingu hjá Brúa fjármögnun.

Fyrir lántakendur
Hvað er Brúa fjármögnun?
Brúa fjármögnun er íslensk lausn fyrir greiðsludreifingu. Við tengjum saman seljendur og viðskiptavini með einfaldri og gagnsærri leið til að dreifa kostnaði við kaup.
Hvernig virkar greiðsludreifing?
Þú velur að dreifa greiðslunni á nokkra mánuði þegar gengið er frá kaupum. Þú auðkennir þig með rafrænum skilríkjum, ferð í gegnum lánshæfismat, undirritar samninginn rafrænt og greiðir síðan fasta upphæð mánaðarlega.
Hverjir geta sótt um?
Þú þarft að vera 20 ára eða eldri, eiga lögheimili á Íslandi og kennitala þín þarf að hafa verið skráð í þjóðskrá í að minnsta kosti sex ár. Miðað er við aldur kennitöluskráningarinnar, ekki búsetutíma. Þá þarftu að standast lánshæfismat sem framkvæmt er í gegnum Creditinfo. Hvort greiðsludreifing stendur þér til boða ræðst af niðurstöðu matsins.
Hvernig skrái ég mig inn sem lántaki?
Þú skráir þig inn með rafrænum skilríkjum, í símanum eða með skilríkjakorti.
Hvaða fjölda greiðslna get ég valið?
Þú getur dreift greiðslunum á 3, 6, 9, 12, 18 eða 24 mánuði, eftir því hvaða kjör seljandinn býður.
Get ég greitt upp fyrr?
Já. Þú getur greitt eftirstöðvarnar upp að fullu hvenær sem er á Mínum síðum.
Hvað gerist ef ég missi af greiðslu?
Þú færð fyrst áminningu. Ef greiðslan er áfram ógreidd fer hún í innheimtuferli. Ef þú sérð fram á að eiga í erfiðleikum með greiðslu skaltu hafa samband við okkur sem fyrst svo hægt sé að finna lausn.
Fyrir seljendur
Hvernig get ég boðið Brúa fjármögnun?
Hafðu samband við okkur og við setjum Brúa fjármögnun upp fyrir þinn rekstur undir þínu eigin nafni.
Hvaða kjör get ég ákveðið?
Þú ákveður sjálfur vexti, gjöld og lánstíma sem þú vilt bjóða viðskiptavinum þínum.
Hvað sér Brúa fjármögnun um?
Við sjáum um tæknina, lánshæfismat, samninga, útgreiðslur og innheimtu.
Hvernig fer uppsetning fram?
Við sjáum um uppsetninguna og aðlögum lausnina að þínu söluferli.
Hvernig fæ ég greitt?
Brúa fjármögnun sér um útgreiðslur samkvæmt því fyrirkomulagi sem samið er um.